|
Glugga og hurðaþjónustan sérhæfðir í viðgerðum og viðhaldi á gluggum og hurðum - síminn 895 - 5511 er alltaf opinn - - húsasmíðameistari - byggingastjóri - skoðunarmaður fasteigna - |
|
Glerjun og gluggaviðgerðir.
Sjáum um öll skipti á gleri, hvort sem það er móða á milli glerja eða gler er brotið og setjum gler í nýja glugga. Fræsum föls ef þess þarf og setjum nýja pósta og opnanleg fög í gamla glugga. Skiptum um stormjárn og krækjur
Fáið tilboð, yður að kostnaðarlausu.
Lása og hurðaviðgerðir.
Allar stillingar á hurðum og hurðapumpum. Sjáum um allar viðgerðir á hurðum, hurðalæsingum og viðhald á þeim. Endurnýjum láshús, sílindra, húna, snerla, karmjárn, bréfalúgur, lamir og allt sem viðkemur hurðum. Setjum aukalæsingar á hurðir, gægjugöt, öryggiskeðjur og lyklakerfi (Master). Gerum við svalahurðir, sem oft eru í miklum lamasessi, með fastar skrár, brotna húna og stífar í falsi. Setjum stoppara á svalahurðir, einnig er sá möguleiki að ganga þannig frá svalahurðum að hægt sé að hafa á þeim loftrifu, en hurðin þó læst.
Hljóðdempandi gler við umferðargötur.
Setjum hljóðdempandi/hljóðeinangrandi gler í glugga eins og kröfur eru um vegna hljóðvistarstyrkja. Hús- og íbúðareigendur við miklar umferðargötur eiga rétt á þessum styrkjum og eru þeir hvattir til að leita sér upplýsinga um þetta. Eins og mál standa nú 2011 þá eru þessir styrkir sem hafa verið undanfarin ár ekki í gangi.
Frágangur sem stenst úttekt Hér má sjá eftir búsetu þá sem geta fengið styrk. Ástandsskoðun húsnæðis » Ath. «
Skoðunarmaður fasteigna - ástandsskoðun og leiguskoðun fasteigna  Fyrir þá sem eru í fasteignahugleiðingum, kaupendur, seljendur, leigjendur, leigusalar og húseigendur og hvern þann sem þarf á hlutlausu mati á fasteignum að halda. |